Skemmtilega orðaðar auglýsingar

1. Sérstakur hádegisverðarmatseðill:
Kjúklingur eða buff kr. 600, kalkúnn kr.
550, börn kr. 300.

2. Til sölu: Antikskrifborð, hentar vel
dömum með þykkar fætur og stórar skúffur.

3. Nú hefur þú tækifæri til að láta gata
á þér eyrun og fá extra par
með þér heim.

4. Við eyðileggjum ekki fötin þín með
óvönduðum vélum, við gerum það
varanlega í höndunum.

5. Til sölu nokkrir gamlir kjólar af ömmu
í góðu ástandi.

6. Þetta hótel býður upp á bowlingsali,
tennisvelli, þægileg rúm og aðra
íþróttaaðstöðu.

7. Brauðrist: Gjöfin sem allir fjölskyldumeðlimir
elska, brennir brauðið sjálfvirkt.

8. Ísafjarðarkaupstaður: Starfsmann vantar,
kvenmann, til starfa.

9. Vantar mann til að vinna í dínamítverksmiðju.
Þarf að vera tilbúinn til að ferðast.

10. Notaðir bílar. Því að fara annað og láta svíkja
sig. Komdu til okkar!

11. Vinna í boði fyrir mann til að hugsa um kú sem
hvorki reykir né drekkur..

12. Ólæs? Skrifaðu okkur strax í dag og við munum veita
þér ókeypis aðstoð.

Persónulega finnst mér auglýsingar nr. 2 og 12 vera bestar, þær eiga svo einstaklega vel við fólk sem ég kannast við.


Júróvisjón

Hvað er betra en pizza, bjór og júróvisjón?????? Núúú, bara pizza og bjór.

Heilræði til frjálsra manna

Jæja núna þegar maður er formlega búinn að undirrita þá pappíra sem gera mann aftur að frjálsum manni þá er ekki úr vegi að deila með ykkur fimm mjög mikilvægum heilræðum sem þeir sem ætla sér einhver samskipti við hitt kynið ættu að kynna sér mjög vel.

1:  Mjög mikilvægt er að finna konu sem er bæði mjög húsleg og í fullri vinnu.

2:  Mikilvægt er að finna konu sem kemur þér til að hlægja.

3:  Mikilvægt er að finna konu sem hægt er að treysta og lýgur ekki að þér.

4.  Mikilvægt er að finna konu sem elskar þig og dekrar við þig.

5:  Mikilvægast af öllu er samt að þessar konur þekkist ekki.


LEIÐRÉTTING

Í fyrra haust tók sig til aðili hér á heimilinu, vopnaðist sveðjum, klippum og sögum og réðst á trén í garðinum og sagaði og klippti sem aldrei fyrr.  Einnig var ráðist í að henda pottaplöntum og fleiru út úr saumastofunni svo hægt væri að koma fyrir fleiri kössum og pokum með ókláruðu dóti.  Skemmst er frá því að segja að núna 6 mánuðum seinna liggja greinarnar á sama stað og hjólbörurnar standa með loftlaust dekk og allt draslið á sama stað þ.e. fyrir utan saumastofuna. Einnig hef ég verið beðinn um að koma með leiðréttingu á færslu hér fyrir neðan þar sem birt er mynd af drasli í bílskúr.  Viðkomandi bað mig um að birta eftirfarandi leiðréttingu og birtist hún hér með orðrétt.   ÉG VEIT NÚ EKKI BETUR EN AÐ HELMINGURINN AF DRASLINU SÉ SÓFASETTIÐ FRÁ HELVÍTIS KERLINGUNNI HENNI MÓÐIR ÞINNI.  Þar með hefur þeirri leiðréttingu verið komið á framfæri, það er jú víst eitt sófasett sem á sök á öllu draslinu þ.e. herberginu hjá 26 ára gömlum manni, saumastofunni, bílskúrnum og væntanlega kemst aðventukransinn ekki fyrir í skúrnum fyrir sófasettinu og þið getið lesið hér fyrir ofan hvaðan það kom.  En allt hitt draslið, hvaðan kemur það??? Ég veit það svo sem alveg en þarf ekki að vitna í þann SVARTA SJÁLFAN né bölva látnu fólki út af því, það ætla ég að láta vera.  En þessari leiðréttingu er hér með komið á framfæri og vonandi líður viðkomandi betur fyrir vikið.  garden 002 garden 004 garden 004


Svona er þetta nú

Miklar framfarir á heimilinu, svei mér þá hefur aðventukransinn færst um heila átta metra (mælt) og er kominn fram í sólstofu, ofan á þurrkgrindina og jólasería með, svo er það sauma og prjónaherbergið, held ég hafi talið sjö plastkassa og níu plastpoka með ókláruðu prjóni og saumum, svo er það bílskúrinn, einu sinni var hægt að setja bílinn inn í skúr og þvo og bóna en núna....   nei núna er hann fullur af drasli sem ég hef ekki einu sinni hugmynd um hver á.  Nokkrir búnir að bjóða mér að hjálpa til við að ryðja draslinu út og það verður skoðað...... Ég meina hver hefði trúað þessu.... allavega komið nóg hjá mér Waaaa 008 Waaaa 010 Waaaa 011

Það versnar enn !!!!

komid nog 007     Hvað er til ráða ??????

BessastaðaBrusselBeib

Það tókst !!  Þeim tókst það Þistilfjarðarumskiptinginum og Lesbíska forsetisráðherranum að finna frambjóðanda sem er áfjáð í að skrifa undir aðild Íslands að ESB.  Á meðan þúsundir Íslendinga svelta og þúsundir eru að missa heimili sín þá er makkað í stjórnarráðinu og hver var útkoman !!!!

BessastaðaBrusselBeib


mbl.is Á ekki að vera pólitískt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Oft er flagð undir feikna spiki

OFT ER FLAGÐ UNDIR FEIKNA SPIKI fyrirsæta

MAMMA segir ÉG má

Herbergi 008 Herbergi 008

Það vill nú svo til að ég þekki til á heimili þar sem búa þrír einstaklingar og fer þar fremst í flokki valkyrja ein mikil sem er skrifar heilu pistlana á Facebook um hvað hún þurfi að þrífa mikið og hversu þreytt hún sé á eftir.  Nú veit ég að þessi valkyrja á 26 ára gamlan son sem býr á heimilinu og verð nú að segja það að ekki eru gerðar sömu kröfur til hans og annara heimilismeðlima hvað varðar umgengni og þrif. Reyndar býr hundur á heimilinu líka og ef ræfillinn verður veikur og þarf að gubba þá fer hann út í horn á sólstofunni og þar kemur kannski smá klessa.  Venjulega verður valkyrjan alveg vitlaus þegar hún kemur auga á slíkt og hefur uppi stór orð og jafnvel hótanir ef svo ber undir.  Ég skil ekki alveg hvaða læti þetta eru í valkyrjunni því frá því um jól hefur einu sinni verið ryksugað og strokið yfir gólf en borð og skápar ekki snertir og aðventukransinn stendur enn á stofuborðinu með kertum og brotinni  jólakúlu öllum til ama.  En varðandi kröfur um umgengni og þrif þá verður að segjast eins og er að 26 ára sonur valkyrjunar sem er atvinnulaus virðist ekki þurfa að lúta sömu lögmálum og aðrir á heimilinu, valkyrjunni sýnist það eðlilegt að hann kaupi heilu kippurnar af orkudrykkjum og kók svo ekki sé minnst á allt skyndibitafæðið sem keypt er daglega með pening frá mömmu.  Síðan eru spilaðir tölvuleikir  allar nætur.  Reyndar er þess ógetið að viðkomandi reykir og þar sem slíkt er ekki leyfilegt innandyra þá fer sonurinn a.m.k. tíu sinnum á hverri nóttu út að reykja og þar sem hundurinn á heimilinu er mikill varðhundur og mannþekkjari þá urrar hann og lætur vita af hverri ferð sem farin er út að reykja.  Þetta verður til þess að þeir sem sofa í herberginu með hundinum vakna á hálftíma fresti og fá fyrir vikið frekar lítinn svefn og eru því oft þreyttari á daginn heldur en valkyrjan sem hefur þrifið einu sinni frá því um jól en er samt nær dauða en lífi af þreytu s.k.v. Facebook.   Oft hefur þessi einstaklingur verið beðinn um að taka með sér umbúðir af skyndibita og setja í ruslatunnu og tómar flöskur og dósir og setja í bílskúr svona um leið og hann á þar leið um að fara út að reykja.  Hvað gerjast í haus valkyrju sem þykist allt geta, vita betur en allir aðrir en getur samt ekki stjórnað 26 ára gömlu BARNI sem hún á. Spyr sá sem ekki veit. En hér eru nokkrar myndir sem sýna ástandið!  Klikkið á myndirnar til að gera þær stærri ef þið trúið ekki eigin augum en svona gengur 26 ára einstaklingur um í húsnæði sem hann á ekkert í er í fríu fæði og húsnæði. Er til of mikils mælst að viðkomandi verði gert að taka til þ.e. rútta öllu draslinu út ellegar  fara sjálfur og einnig væri það vel þegið að aðventukransinn yrði tekinn af stofuborðinu og helst hent því hann er afspyrnuljótur

Herbergi 001 Herbergi 008 Herbergi 006

OG HVAÐ Á AÐ GERA ÞEGAR MAMMA SEGIR " ÉG MÁ" jólakrans 003


LÆKLÆKALÆKALÆK

Góður kunningi minn sem ég hafði hvorki séð né heyrt um nokkurt skeið bankaði óvænt uppá hjá mér um daginn, svona rétt til þess að segja hæ eins og hann orðaði það.  Vitanlega bauð ég gestinum til stofu og þar sátum við og ræddum landsins gagn og nauðsynjar, ríkistjórn, forseta, biskup eða heilaga þrenningu.  Talið barst síðan að tölvum og internetinu og tjáði vinurinn mér hann ætti orðið 790 vini á Facebook og hefði eiginlega ekki orðið tíma til að fylgjast með öllu sem færi þarna fram. Bíddu nú við sagði ég,  var það ekki Ólafur Stefánsson sem sagði það að ef þú ættir 1000 vini á Facebook þá ættir þú í raun og veru enga vini.  Jú en sjáðu til sagði vinurinn þetta er líka svo fjandi góður vefur til að kynnast kerlingum og komast á deit eða þannig.  Ég nota þennan vef nú eiginlega eingöngu til að spila Poker sagði ég, maður getur spila um gervipeninga þarna þannig að maður tapar í raun og veru aldrei neinu.  En annars hef ég þá skoðun á þessum vef að hann bókstaflega geti tekið yfir líf fólks og það beinlínis verður veikt ef það kemst ekki á Facebook a.m.k. tíu sinnum á dag.  Svo er líka alveg ótrúlegt hvað sumir láta fara frá sér þarna inni á þessum vef og alltaf eru einhverjir sem læka og læka sem eins og aldrei sé morgundagurinn,  sama hver vitleysan er.  Ég skal nefna þér dæmi, kona sem ég þekki er með opið fyrir Facebook allan daginn þegar hún er í vinnunni og þegar hún kemur heim þá er strax hlaupið í tölvuna og beint á Facebook aftur.  Hún hefur bitið það í sig að jörðin hætti að snúast og heimurinn farist ef hún sé ekki þarna öllum stundum til að læka og læka, skipta sér af öllu og engu þó aðalega öllu  og skrifa misgáfulega athugasemdir sem hún trúir statt og stöðugt að allir vinirnir lesi.  Ég get nefnt þér dæmi um hversu ótrúlegt þetta er.  Ónefndur karlmaður sem hún er að eltast við leynt og ljóst setti inn status um að hann væri kominn með hrikalega ræpu og væri að drepast í rassgatinu og hvað gerist!  Jú jú strax komið læk á ræpuna og lækalæk á rassgatið og að sjálfsögðu komment að auki. Skömmu síðar setur maðurinn inn status um að hann hafi kviðslitnað og sé að drepast í pungnum og þurfi í aðgerð.  Nær samstundis kom frá konunni læk á kviðslitið, lækalæk á punginn og til að ítreka fyrri stöðu þá kom aftur læklækalæk á rassgatið og læklækalækalæk á ræpuna.  Finnst þér þetta ekki smekklegt spurði ég svo vininn.  Þetta fólk er veikt sagði vinurinn en eins og ég sagði þá er alveg hægt að komast á deit þarna ef maður er að leita eftir því en hvernig er það er það rétt sem ég var að heyra að þú og kerlingin ætlið að fara sitt í hvora áttina og hætta búskap saman.  Rétt vinur sæll sagði ég við Moli erum á förum fljótlega og vera kann að ég biðji þig um lítilsháttar hjálp þegar að því kemur að við flytjum sagði ég.  Aha sagði vinurinn, ég var nefnilega að spá í að af því að Valintínusarsdagurinn er á næsta leiti og við vorum að tala um Facebook þá veit ég að frænka mín sendi þér vinabeiðni þar um daginn og var að spá í að því að fyrst þú ætlar þessa leið hvort þú ættir ekki að senda henni Valintínusarkort bara svona í gamni og kannski gefa í skin að þú værir til í kaffibolla einhvertíma seinna meir ef hlutir æxluðust svo.  Jedúdda malla mía stundi ég upp ertu orðin kolvitlaus karl, veistu ekki hvaða álit ég hef á öllum þessum bónda, konu og hvað þá einhverjum Amerískum Valintínusardögum.  Allt saman eitt stórt samsæri hjá súkkulaði og blómaframleiðendum.  Nei takk vinur sæll þetta er ekki fyrir mig.  Spáðu nú í þetta sagði vinurinn og stóð á fætur og kvaddi með mestu virktum.  Daginn eftir þegar ég svo skrapp í Rúsínubúðina þá var mér gengið framhjá rekkanum með öllum heillaóska, afmælis og Valíntínusarkortunum  og staldraði aðeins við.  Andskotinn hugsaði ég svo þetta var náttúrulega tómt bull í karlinum í gær en það sakar kannski ekki að kaupa eitt fjandans kort svona til að eiga til síðari tíma.  Fyrir valinu varð kort með mynd af berrössuðum engli sem var að skjóta ör með hjartalaga oddi af boga.  Áður en heimleiðis var haldið aftur þá þurfti ég að koma við á einum stað og þar áskotnaðist mér þessi forláta Whisky flaska eða algjör eðall eins og maðurinn  sagði.  Það var svo liðið á kvöld þegar ég opnaði eðalinn og þorði ekki annað en að hella  ofurvarlega í glasið.  Það heyrðist svona blúbb blúbb blúbb rétt eins og þegar jómfrú pissar í læk á fögru sumarkvöldi við dásamlegan fuglasöng.  Ó Guð stundi ég þegar ég hafði bragðað eðalinn, þvílíkur drykkur, dásamlegt já hreint alveg dásamlegt.  Nú það er skemmst frá því að segja að því meira sem jómfrúin pissaði því betur leið mér.  Þegar ég skrapp svo fram úr stofunni rétt sem snöggvast þá sá ég hvar kortið með berrasaða englinum lá á kommóðunni í ganginum og staldraði við tók það upp og hugsaði með mér,  þetta er nú helvíti laglegt kort og kannski það saki ekkert að hripa niður nokkrar línur eins og karlinn hafði lagt til, það ætti nú varla að farast himinn og jörð þó maður bulli eitthvað.  Ég náði mér í skriffæri og settist við eldhúsborðið til að rita frænku vinar míns nokkrar línur en þá fór í verra.  Ég mundi ekki með nokkru móti hvað frænkan hét og þurfti því að skjótast í tölvuna og logga mig inn á Facebook svo ég myndi nú ekki klúðra bréfinu strax við að skrifa utan á umslagið.  Eftir að hafa rækilega gengið úr skugga um nafnið á frænkunni kom ég við í stofunni og lét jómfrúna pissa einu sinni enn til að hafa nú eitthvað hjartastyrkjandi meðan skriftir stæðu yfir.  Þar sem ég hafði aldrei skrifað svona kort áður velti ég því fyrir mér hvað menn skrifuðu eiginlega í kortið en datt bara nákvæmlega ekkert í hug.  Ég ákvað því að láta bara innsæið ráða, fékk mér gúllara af eðalnum og hóf skriftir og þær byrjuðu einhvernvegin svona. 

Hávelborna náðuga ungfrú, fyrirgefið að ég skuli gerast svo djarfur eftir áeggjan frænda yðar að senda yður ofurlítinn pistil frá mínu fábrotna heimili.  Eins og frændi yðar hefur réttilega bent á þá erum við þ.e. oss og þér komin vel yfir miðjan aldur, ekki það að ég sé að gefa í skin að þér séuð kominn á grafarbakkann, þvert á móti en þegar kallið loks kemur þá er ég viss um að sjálf jómfrú María guðsmóðir mun bera sál yðar til hásæta Drottins þar sem allar yðar mörgu syndir munu verða fyrirgefnar.  Kortið var nú löngu búið og ég hafði neyðst til að sækja A4 blað til að koma því fyrir sem mér lá á hjarta en eftir aðra heimsókn í stofuna til að sækja hjartastyrkjandi þá er  það  sem á eftir fór í bréfinu frekar þokukennt í minningunni en ég er þó viss um að ég endaði þennan Valintínus á því að stinga uppá stefnumóti uppi í dívan í daufri birtu.

  Þá er bara að póstleggja herlegheitin hugsaði ég svo og skellti frímerki á kortið sem nú innihélt líka A4 bréf með og að því að mér fannst ansi lagleg frumraun í Valintínusarkortsendingum.  Kortið setti ég síðan í plasthulstur og skrifaði með stórum stöfum Pósturinn á miða sem ég límdi á og batt svo allt saman á hurðarhúninn.   Þegar ég svo vaknaði daginn eftir fóru að renna á mig tvær grímur hvort þetta hefði nú virkilega verið góð hugmynd því ég mundi nú ekki alveg allt sem ritað hafði verið og hljóp því fram og kíkti á hurðarhúninn en of seint kortið var á bak og burt.  Kannski hefur það fokið burt hugsaði ég vongóður en daginn eftir Valintínusardaginn rann upp stund sannleikans.  Síminn hringdi og þegar ég svaraði var hrópað hinu megin á línunni. Ertu orðinn band sjóðandi vitlaus maður. það er allt vitlaust í famelíunni, þú sendir frænku minni kort og gefur í skin að ég hafi sagt að hún væri orðin eldgömul og jafnvel kominn á grafarbakkann og ekki var það svo betra sem á eftir fór.  Vinurinn var nú gráti nær á meðan hann útlistaði að hann gæti ekki látið sjá sig í afmælum eða fermingarveislum svo lengi sem frænka lifði.   Stilltu þig gæðingur sagði ég  man ekki betur en ég hafi sagt þér að ég væri alfarið á móti þessum asnalegu dögum sem kallast hinum ýmsu nöfnum en það var bara fyrir þrábeiðni þína að ég sendi kortið.  Já en fyrr má nú vera kjökraði vinurinn það er allt vitlaust út af þessu og mér er kennt um allt saman.  Tja ég geri þá ráð fyrir því að stefnumótið uppi í dívan í daufri birtu sé líka fyrir bí sagði ég en það gerir líklega ekkert til, þú sagðir um daginn að ef maður hefði áhuga þá væri víst ekkert mál að komast á deit á Facebook en meðan að við jöfnum okkur á þessu þá getum við bara gert eins og hinir, bullað um allt og ekkert og ef einhver fær ræpu eða kviðslit þá er það bara:

                                              LÆKLÆKALÆKALÆK


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband