Skipulagningin

Ég áttaði mig á því í dag að það eru að verða þrjár vikur frá því að okkar maður flutti búslóð, kerlingu, grislinga og gæludýr í nýja húsið og satt best að segja hefur verið svo mikið að gera að það hefur ekki gefist neinn tími fyrir blogg þessar vikur.  Ég er ennþá að læra á nýju híbýlin sem eru svolítið öðruvísi en var í gamla kotinu okkar,  sérstaklega bílskúrinn eða dótakofann eins og konan kallar það víst.  Þó að dótakofinn sé jú ennþá hálffullur af kössum og stólum og skápum þá á ég það til að laumast þangað sérstaklega á kvöldin og þá til að skipuleggja hvar ég ætla að geyma verkfærin og hengja upp veiðistöngina og þess háttar og konan gerir sér líka alltaf eina ferð þangað út áður en hún gengur til náða en það er til að telja bjórflöskurnar í ískápnum sem áður stóð í geymslunni í gamla kotinu okkar.  Ennþá hefur þó enga dós vantað enda hefur hún ekki ennþá tekið eftir kassanum í efstu hillunni í dótakofanum.   Það var svo eitt kvöldið að ég hafði brugðið mér þangað út og var að mæla hvort bílskúrsdyrnar væru alveg örugglega ekki það breiðar að konan gæti líka keyrt bílinn inn í skúrinn án stóráfalla að ég var truflaður þegar konan kallaði á mig í símann og svo gleymdi ég mér að símtalinu loknu yfir þætti á Skjá einum og var orðin hálfsyfjaður þegar honum lauk.  Ég gekk því til náða og lagðist upp í rúmm við hliðina á konunni og kúrði mig undir hlýja sængina þegar konan sagði:  Þetta var nú meiri dagurinn og síðan geispaði hún alveg ógurlega sem aftur varð til þess að ég mundi hverju ég hafði gleymt.  Ég spratt því undan sænginni og smeygði mér í buxur og bol  og á meðan horfði konan á mig en sagði síðan:  Það tók því að hátta bara til að klæða sig aftur nokkrum sekúndum seinna.  Já það var bara smávegis sem ég gleymdi sagði ég og ætlaði að smeygja mér út um svefnherbergisdyrnar.  Ertu að fara að laumast í bjórinn sagði konan höst,  þú hefur ekkert að gera með að vera að fá þér bjór núna bætti hún við.  Nei nei elskan það var bara þegar þú geispaðir áðan þá mundi ég eftir því að ég gleymdi að loka bílskúrsdyrunum sagði ég og snaraðist fram í bílskúr og lokaði dyrunum.   Þegar ég kom til baka snéri konan baki í mig og þegar ég var kominn undir sængina aftur gat ég ekki að því gert en mér fannst eins og það andaði köldu frá konunni og ég heyrði ekki betur en hún væri að tuldra eitthvað og þó ég heyrði nú varla orðaskil þá fannst mér það hljóma einhverveginn svona þ.e. það sem ég heyrði:  Andskotans ósvífni…… engin hjálp við heimilsstörfin….. alltaf að gera allt sjálf…..

Ég velti því fyrir mér hvort hún ætti við mig en fannst það frekar ótrúlegt enda var ég nýbúinn að mála tvö svefnherbergi og báðar stofurnar FYRIR HANA,  ég var búinn að hengja upp sex ljós FYRIR HANA  og  þegar við fórum á bensínstöð síðast þá dældi ég olíunni á bílinn  FYRIR HANA og síðast í gærkvöldi fór ég út í búð og keypti kók handa mér FYRIR HANA.   Mér þótti því nánast útilokað að hún ætti við mig,  hún hlýtur að eiga við einkasoninn hugsaði ég með mér og huggaði mig við það að kuldaskeiðin hjá konunni í rúmminu eru venjulega ekki löng og þóttist vita að allt yrði fallið í ljúfa löð morguninn eftir.   Ég vaknaði svo morguninn eftir kátur og hress um leið og konan og stormaði sem leið lá á salernið en við höfum þurft að venja okkur á eilítið nýja siði þar eftir að við fluttum því að í gamla kotinu voru nefnilega tvö salerni en í nýja húsinu bara eitt.  Reyndar eru þau tvö en hitt er niðri í kjallara hjá Rússunum og konan fæst ekki með nokkru móti til að fara niður og nota það á morgnana og ber því við að geta ekki sprænt á Rússnesku.  Ég hef því stundum laumast til að pissa þegar ég er alveg í spreng á meðan konan burstar tennurnar.  Ég var hinnsvegar bara hálfnaður að pissa þennan morguninn þegar ég tók eftir því að konan stóð og horfði á mig og sagði síðan höstuglega:  Lærðirðu það þegar þú varst lítill að míga helminginn framhjá klósettskálinni og á gólfið eða tókstu það upp hjá sjálfum  þér eftir að þú byrjaðir að búa.  Fyrirgefðu elskan ég hef víst verið með úðarann á sagði ég og snarhætti að pissa  sem aftur varð til þess að ég misti frá mér smá prump í leiðinni.  Andskotans ósvífni er þetta sagði konan og var hin versta svona lagað gerir maður ekki í viðurvist annara,  þú getur bara drullast fram í bílskúr ef þú þarft að vera að freta þetta.  Engin er synd þótt búkurinn leysi vind sagði ég en fann að meira var að koma svo ég tók á sprett í áttina að bílskúrnum en komst reyndar ekki lengra en inn í garðskálann áður en ég þurfti að hleypa af.  Á meðan velti ég því fyrir mér hvort ástandið væri orðið þannig þegar konan sæti á tolettinu að hún þyrði ekki að prumpa að ótta við að það kæmi loftbóla upp um vaskinn hjá  Rússunum í kjallaranum.   Þó þóttist ég vita að þetta væri bara lokahnykkurinn á kuldakastinu frá kvöldinu áður.   Þegar konan hafði svo lokið við að athafna sig á tolettinu laumaðist ég þangað inn til að klára að pissa en konan hafði þá hengt upp skilti fyrir ofan klósettið sem á stóð:  “ Stattu nær hann er styttri en þú heldur “  Þegar ég hafði svo keyrt konuna í vinnuna fór  ég heim aftur og gerði smá mælingar í bílskúrnum og velti fyrir mér hvort ekki mætti skipuleggja svolítið tolett við hliðina vaskahúsinu í skúrnum.  Ég ákvað þó að bíða eftir því að konan kæmi heim og kanna hvort kuldakastinu væri ekki örugglega lokið áður en ég bæri skipulagninguna undir hana því hún sagði nefnilega við mig þegar við fluttum:  “ Hér verður ekkert skipulagt nema ég skipuleggi skipulagninguna. “


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Jasso.........KULDAKAST..........ekki nema það þó. Ég hugsa nefnilega líka stundum!!! Bara að láta þig vita að ég kann sko á ísskápinn, veit vel að þú átt kassa sem þú sækir birgðirnar í svo það líti út fyrir að ekkert vanti í ísskápinn.......ÉG TEL NEFNILEGA DÓSIRNAR Í SVARTA POKANUM, (þ.e tómu dósirnar). Svo er líka mjög hagkvæmt tuskulega séð að hafa bara eitt toilett......sérstaklega þegar ég er eina kvenveran hér á heimilinu......allir hinir, hvort það ert þú eða strákarnir og svo hundurinn.....allt þetta auka er KK.
Bestu kveðjur og gangi þér vel að skipuleggja.......ég er líka klækjakvendi (þú hefur bara ekki fattað það)

eiginkonan og.........allt sem bloggið snýst um (IP-tala skráð) 14.9.2006 kl. 11:00

2 identicon

aths. nr. 2.
Þú talar um að þú hafir farið að kanna hvort dyrnar á bílskúrnum (dótaherbergi karlsins) væru nógu breiðar svo ég gæti keyrt um þær án stóráfalla.....HUH, þó ég sé ekki lítil þarftu ekki að taka svona til orða. Þú ert líka búinn að lýsa frati á minn akstursmáta með því að segja vinum og vandamönnum að þú sitjir ekki hægra megin í bílnum nema FULLUR!!!! Svo varstu eitt sinn (ófullur hægra megin í bílnum!!!!) að tauta við Mola kallinn að það þyrfti að kenna mér að bakka í bílastæðið!!!! eins og ég hafi ekki getað gert það skammlaust hingað til. Eins og ég sjái ekki útundan mér þegar þú ert að mæla út hvernig ég legg í stæðið!!!!! Ég sé líka að þú skreppur út með málbandið til að mæla hvort ég leggi ekki alveg á miðju stæðisins og líka hvort það sé ekki jafnlangt í dótakassahurðina eins og frá bíl út að götu..........ÓJÚ, það er alltaf jafnstórt pláss til beggja hliða og líka fyrir framan og aftan bíl.
........Ætli ég þurfi að opna bloggsíðu til að tjá mig um heimsins vandamál á heimilinu??? ég bara spyr

Bloggefnið hans Snorra..........eiginkonan (IP-tala skráð) 14.9.2006 kl. 14:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband