Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda

KJARVAL ER JÚ ALLTAF KJARVAL

Frú Sólveig sat við eldhúsborðið heima hjá sér í Miðtúninu eitt kvöldið fyrir skömmu síðan og las Morgunblaðið meðan hún beið eftir því að suðan kæmi upp á fiskisúpunni sem ætluð var til kvöldverðar.  Allt í einu leit hún svo upp úr blaðinu og sagði glaðhlakkalega:  Þetta er eins og ég hef alltaf vitað,  aldur er engin fyrirstaða ef fólk ætlar sér bara að gera hlutina.  Hér er ég að lesa um konu  í útlöndum sem er komin vel á sjötugsaldur og var að eignast barn.  Ertu ekki að djóka sagði ég er þetta ekki bara prentvilla ég trúi því nú varla að einhver kerlingarherfa hafi farið að eignast barn á þessum aldri.  Ég er nú aldeilis hrædd um það sagði konan sigri hrósandi og bæði móður og barni heilsast vel.  Guð minn góður sagði ég þetta ætti að vera bannað með lögum,  hvað á að gera þegar barnið stækkar á að setja það á leikskóla eða vista það á ellhiheimilinu hjá mömmunni en reyndar er það kannski eini kosturinn við þetta að hún getur þá trillað því um í barnavagninum og gefið því brjóst í leiðinni.  En barnaverndaryfirvöld ættu líka að koma að þessu máli því að þurfa að sjúga svona gamlar túttur verður örugglega efni í margra ára vinnu fyrir  sálfræðinga þegar barnið stækkar.  Tja kella má nú eiga það að það er kraftur í henni sagði konan og það er reyndar líka kraftur í karlinum sem kemur alltaf öðru hvoru í bankann til mín því hann er kominn á áttræðisaldur en er samt alltaf að gefa mér undir fótinn og reyna við mig.  Hann vill fá mig fyrir konu og er alltaf að bjóða mér með sér í íbúðina sína á Spáni.   Þetta er forríkur karl sem á fullt af eignum út um allt.  Ég velti því fyrir mér smástund hvort þessi skyndilegi áhugi konunnar á öldruðu fólki stafaði nokkuð af því að hún á stórafmæli í apríl og hvort það væri nokkuð farið að fara á sálina á henni að ná þeim áfanga en áræddi þó að spyrja eftir stutta þögn:  Á ég að skilja þetta sem svo að þú viljir skilnað eða hvað.  Nei ætli það svaraði konan, ætli maður dandalist ekki með þér eitthvað lengur ef þú hagar þér almennilega.  Þú ættir kannski að giftast karluglunni svo þú erfir allt góssið og ég get þá bara verið ástmaður þinn þangað til sá gamli hrekkur upp af sagði ég montinn yfir þessari frábæru hugdettu.  Ha Ha Ha Ha konan skellihló góða stund en sagði svo með mikilli alvöru.  Að eiga þig fyrir ástmann væri nú eins og að vera glorsvangur, eiga LÍTIÐ að éta og þurfa svo bara að gera gott úr öllu saman.  En þegar ég sagði þeim gamla að ég væri gift þá bað hann mig að spyrja þig hvort þú værir ekki til í að sleppa mér ef þú fengir Kjarvalsmálverk í staðin.  Hmmm sagði ég móðgaður yfir þessum viðbrögðum við þessari frábæru hugdettu minni,  hvað er þetta Kjarvalsmálverk annars stórt.   Ætlar þú að segja mér það Snorri Snorrason að þér svo mikið sem detti það í hug að skipta á mér og einhverju klessuverki eftir löngu dauðan kall hrópaði konan,  ég hélt nú að þú værir löngu búinn að gera þér grein fyrir því hvurslags kostagripur ég er og hvar ætlar þú að finna aðra konu jafn skemmtilega og mig fyrir utan það að ég skipti aldrei skapi.  Já það er rétt elskan þú skiptir aldrei skapi ert alltaf kolvitlaus tautaði ég ennþá hálf móðagaður.  Hvað sagðirðu spurði konan hvasst.  Ég sagði að þetta væri alveg rétt með skapið sagði ég til að halda friðinn því konan leggur nefnilega  ríka áherslu á að við förum aldrei að sofa ósátt og því vökum við alltaf og rífumst áfram þegar eitthvað bjátar á.  Eftir fiskisúpuna brá konan sér svo í heimsókn út í bæ en ég settist við sjónvarpið.  Þegar konan svo kom heim var farið að halla í háttatíma og eftir að hafa sýslað eitthvað í eldhúsinu kom hún fram  í stofu og kyssti mig á skallann og spurði hvort ekki væri rétt að fara að hátta.  Ég kláraði að horfa á þáttinn sem var í sjónvarpinu en fór svo inn í rúm að hátta en konan var þá komin undir sæng og var að lesa í bók   Ég skreið undir sængina og konan lagði frá sér bókina og tók utan um mig og spurði hvort það væri ekki allt í lagi.  Ég velti mér á hina hliðina og breiddi sængina upp fyrir haus um leið og ég sagði.  Það vona ég að þú sért glorsvöng því þú færð EKKERT að éta og reyndu svo að gera gott úr því.   Þegar ég svo sármóðgaður var að festa svefninn gat ég ekki varist því að hugsa:

 

“KJARVAL ER JÚ ALLTAF KJARVAL”


PÍS OF KEIK

Konan mín hefur þá bjargföstu trú að karlmenn geti alls ekki bjargað sér sjálfir svo mikið sem einn dag hvað þá fleiri.  Alveg frá því að við byrjuðum að búa hefur hún bannað mér að koma nálægt allri matargerð og heimilisstörfum yfirleitt því að hún er svo viss um að ég ráði ekki við það.  Hún hefur satt best að segja ekki getað hugsað sér að vera í burtu svo mikið sem eina einustu nótt frá okkur karlpungunum eins og hún kallar það því að hún er svo viss um að myndum verslast upp og deyja ef hennar nyti ekki við.  Ég hef í sjálfu sér ekki haft neitt við þessa tilhögun á heimilinu að athuga en hef þó stöku sinnum andmælt og sagt henni að ég gæti auðveldlega séð um mig og hundinn sjálfur í einn eða fleiri daga.  Þegar konan er svo ekki að sinna skyldum sínum sem húsmóðir þ.e. matbúa, taka til, sjóða sultur og fleira í þeim dúr,  situr hún og saumar heljar mikið veggteppi sem svo aftur á að prýða einn heilan vegg í húsinu okkar.  Það er bara einn galli þar á,  sem sagt inn í miðjunni á veggteppinu er eitthvað feikna mikið dúllerí sem krefst þess víst að maður kunni bæði kross og krúttsaum en eftir fjöldamargar tilraunir við dúlleríið varð konan að játa sig sigraða og viðurkenna að hún kynni ekki kross og krúttsaum.  Ekki gafst þó saumakonan upp heldur fór á netið og leitaði að öllu sem hún fann um kross og krúttsaum og viti menn,  næsta laugardag og sunnudag skyldi verða námskeið í kross og krúttsaumi í Reykjavík og átti það að standa langt frameftir laugardalskvöldinu og byrja svo eldsnemma á sunnudeginum og standa fram á miðjan dag.  Konan ætlaði í fyrstu ekki að fást til að fara á námskeiðið þar sem hún sá fram á að þurfa að gista í Reykjavík  og var alveg viss um að bæði karl og hundur myndu verslast upp og deyja við að þurfa að sjá um sig sjálfir í einn sólarhring.  Það var ekki fyrr en eftir miklar fortölur sem hún fékkst til að fara en fyrst þurfti hún þó að halda námskeið fyrir mig og Mola í eldhúsinu og var þar sérstaklega farið yfir hvernig á að nota örbylgjuofn sem er tæki sem ég hef alltaf talið mig kunna á,  bara stilla tímann og ýta á einn takka.  En við Moli komumst að því að það er meira en að segja það að stýra örbylgjuofni því á námskeiði konunnar kom fram að það er sko aldeilis ekki sama hvort maður er að hita lambaket, kjúkling eða fisk,  ó nei það er sko sér stilling fyrir hvern rétt fyrir sig og síðan að minnsta kosti fjórar undirstillingar fyrir hvern.  Ekki náði ég þessu nú öllu en treysti á að Moli myndi muna þetta ef á þyrfti að halda.  Á föstudagskvöldinu sagðist konan svo vera hætt við að fara hún hefði svo mikið samviskubit yfir því að skilja okkur eina eftir mig og hundinn.  En við Moli gáfum ekkert eftir og sögðumst sjálfir fara á kross og krúttsaums námskeið ef konan færi ekki því það yrði enginn andskotans friður á heimilinu fyrr en veggteppið væri búið og komið upp á vegg.  Þegar svo kom að því daginn eftir að konan þurfti að leggja af stað á námskeiðið fór hún einu sinni enn yfir það með mér hvernig best væri að lifa aðskilnaðinn af en tók síðan hundinn í fangið og síðan fór af stað eitthvað ferli sem ég skildi varla en hljómaði einhverveginn svona:

Ó kondu kondu elsku monsi sponsinn minn,  gúllí vúllí vúllí kondu til mömmu elsku monsi sponsu spíturassgatið mitt,  hver er langsætastur  af öllum dúllsi dúllsi krúsindúllu sponsinn minn. 

Skárri er það nú andskotinn hvernig látið er með hundinn hugsaði ég með mér,  ekki lætur hún svona við mig og síðan reyndi ég að rifja upp hvenær hún hefði síðast verið svona góð við mig en það eina sem ég mundi eftir var þegar hún sagði við mig fyrir tveimur dögum sínan:  Drattastu í bað það er táfýla af þér.  

Loks tókst okkur þó að koma kerlingunni út um dyrnar og þegar við höfðum lokað á eftir henni horfðum við hvor á annan við Moli og vissum báðir að nú var stund sannleikans upprunnin og kæmi nú í ljós hversu mikið starf það væri að vera húsmóðir. Við byrjuðum á að setjast inn í stofu og kveikja á sjónvarpinu og fljótlega fundum við leik til að horfa á og ég spurði Mola hvort ekki væri tilvalið að fá sér bjór yfir leiknum.  Hundurinn horfði á mig en sagði svo woff sem ég túlkaði undireins sem JÁ  svo ég skarpp fram í skúr og náði í einn kaldann.  Í hálfleik ákváðum við síðan að við værum orðnir svangir og kíktum því í eldhúsið.  Á eldhúsborðinu fundum við stafla af pönnukökum og svo fleiri í ísskápnum en þær voru með rjóma.  Einnig var diskur með flatbrauði í ísskápnum og eitthvað fleira með.  Við skófluðum í okkur þangað til við vorum vel mettir og hentum svo diskunum í vaskinn og litum hvor á annan.  Ekki var þetta nú erfitt sagði ég það er greinilega ekkert svo mikið mál að vera húsmóðir bætti ég við þegar við settumst aftur inn í stofu.  Á meðan við vorum að borða hringdi konan fjórum sinnum til að vita hvort allt væri ekki í lagi og við fullvissuðum hana um að ekkert amaði að okkur.  Þegar svo leið að kvöldmatnum vandaðist málið verulega því að á eldavélinni stóð fullur pottur af kjúkling í sósu með kartöflum og grjónum.  Það hafði nefnilega láðst að kenna okkur hvernig ætti að hita upp í örbylgjunni svona flókna máltíð með svona mörgu í en við ákváðum að gera bara eins og venjulega þ.e. stilla bara á 2 mín. og ýta á takkann.  Og viti menn allt gekk eins og í sögu og þetta varð hin ljúfengasta máltíð.  Ekki var þetta nú erfiðara sagði ég við Mola um leið og ég setti diskana í vaskinn.  Eftir matinn tók svo við annar kaldur og friðsæl leti yfir sjónvarpinu þangað til við gengum til náða laust eftir miðnætti.  Morguninn eftir gekk allt eins og í sögu ekkert mál að hella kornfleksi í skál og hella mjólk yfir.  Þegar konan kom svo heim um miðjan daginn varð hún hálf hissa að sjá okkur á lífi en þó fegin held ég,  alla vega fékk hundurinn slatta af “gúllí vúllí “ og hún minntist ekkert á að það væri táfýla af mér.  Við Moli höfum því komist að því að það er ekkert því til fyrirstöðu að konan taki framhaldsnámskeið í kross og krúttsaumi því það er nefnilega alveg eins og við vissum alltaf ekkert mál að vera húsmóðir það var eiginlega bara "PÍS OF KEIK."


Skipulagningin

Ég áttaði mig á því í dag að það eru að verða þrjár vikur frá því að okkar maður flutti búslóð, kerlingu, grislinga og gæludýr í nýja húsið og satt best að segja hefur verið svo mikið að gera að það hefur ekki gefist neinn tími fyrir blogg þessar vikur.  Ég er ennþá að læra á nýju híbýlin sem eru svolítið öðruvísi en var í gamla kotinu okkar,  sérstaklega bílskúrinn eða dótakofann eins og konan kallar það víst.  Þó að dótakofinn sé jú ennþá hálffullur af kössum og stólum og skápum þá á ég það til að laumast þangað sérstaklega á kvöldin og þá til að skipuleggja hvar ég ætla að geyma verkfærin og hengja upp veiðistöngina og þess háttar og konan gerir sér líka alltaf eina ferð þangað út áður en hún gengur til náða en það er til að telja bjórflöskurnar í ískápnum sem áður stóð í geymslunni í gamla kotinu okkar.  Ennþá hefur þó enga dós vantað enda hefur hún ekki ennþá tekið eftir kassanum í efstu hillunni í dótakofanum.   Það var svo eitt kvöldið að ég hafði brugðið mér þangað út og var að mæla hvort bílskúrsdyrnar væru alveg örugglega ekki það breiðar að konan gæti líka keyrt bílinn inn í skúrinn án stóráfalla að ég var truflaður þegar konan kallaði á mig í símann og svo gleymdi ég mér að símtalinu loknu yfir þætti á Skjá einum og var orðin hálfsyfjaður þegar honum lauk.  Ég gekk því til náða og lagðist upp í rúmm við hliðina á konunni og kúrði mig undir hlýja sængina þegar konan sagði:  Þetta var nú meiri dagurinn og síðan geispaði hún alveg ógurlega sem aftur varð til þess að ég mundi hverju ég hafði gleymt.  Ég spratt því undan sænginni og smeygði mér í buxur og bol  og á meðan horfði konan á mig en sagði síðan:  Það tók því að hátta bara til að klæða sig aftur nokkrum sekúndum seinna.  Já það var bara smávegis sem ég gleymdi sagði ég og ætlaði að smeygja mér út um svefnherbergisdyrnar.  Ertu að fara að laumast í bjórinn sagði konan höst,  þú hefur ekkert að gera með að vera að fá þér bjór núna bætti hún við.  Nei nei elskan það var bara þegar þú geispaðir áðan þá mundi ég eftir því að ég gleymdi að loka bílskúrsdyrunum sagði ég og snaraðist fram í bílskúr og lokaði dyrunum.   Þegar ég kom til baka snéri konan baki í mig og þegar ég var kominn undir sængina aftur gat ég ekki að því gert en mér fannst eins og það andaði köldu frá konunni og ég heyrði ekki betur en hún væri að tuldra eitthvað og þó ég heyrði nú varla orðaskil þá fannst mér það hljóma einhverveginn svona þ.e. það sem ég heyrði:  Andskotans ósvífni…… engin hjálp við heimilsstörfin….. alltaf að gera allt sjálf…..

Ég velti því fyrir mér hvort hún ætti við mig en fannst það frekar ótrúlegt enda var ég nýbúinn að mála tvö svefnherbergi og báðar stofurnar FYRIR HANA,  ég var búinn að hengja upp sex ljós FYRIR HANA  og  þegar við fórum á bensínstöð síðast þá dældi ég olíunni á bílinn  FYRIR HANA og síðast í gærkvöldi fór ég út í búð og keypti kók handa mér FYRIR HANA.   Mér þótti því nánast útilokað að hún ætti við mig,  hún hlýtur að eiga við einkasoninn hugsaði ég með mér og huggaði mig við það að kuldaskeiðin hjá konunni í rúmminu eru venjulega ekki löng og þóttist vita að allt yrði fallið í ljúfa löð morguninn eftir.   Ég vaknaði svo morguninn eftir kátur og hress um leið og konan og stormaði sem leið lá á salernið en við höfum þurft að venja okkur á eilítið nýja siði þar eftir að við fluttum því að í gamla kotinu voru nefnilega tvö salerni en í nýja húsinu bara eitt.  Reyndar eru þau tvö en hitt er niðri í kjallara hjá Rússunum og konan fæst ekki með nokkru móti til að fara niður og nota það á morgnana og ber því við að geta ekki sprænt á Rússnesku.  Ég hef því stundum laumast til að pissa þegar ég er alveg í spreng á meðan konan burstar tennurnar.  Ég var hinnsvegar bara hálfnaður að pissa þennan morguninn þegar ég tók eftir því að konan stóð og horfði á mig og sagði síðan höstuglega:  Lærðirðu það þegar þú varst lítill að míga helminginn framhjá klósettskálinni og á gólfið eða tókstu það upp hjá sjálfum  þér eftir að þú byrjaðir að búa.  Fyrirgefðu elskan ég hef víst verið með úðarann á sagði ég og snarhætti að pissa  sem aftur varð til þess að ég misti frá mér smá prump í leiðinni.  Andskotans ósvífni er þetta sagði konan og var hin versta svona lagað gerir maður ekki í viðurvist annara,  þú getur bara drullast fram í bílskúr ef þú þarft að vera að freta þetta.  Engin er synd þótt búkurinn leysi vind sagði ég en fann að meira var að koma svo ég tók á sprett í áttina að bílskúrnum en komst reyndar ekki lengra en inn í garðskálann áður en ég þurfti að hleypa af.  Á meðan velti ég því fyrir mér hvort ástandið væri orðið þannig þegar konan sæti á tolettinu að hún þyrði ekki að prumpa að ótta við að það kæmi loftbóla upp um vaskinn hjá  Rússunum í kjallaranum.   Þó þóttist ég vita að þetta væri bara lokahnykkurinn á kuldakastinu frá kvöldinu áður.   Þegar konan hafði svo lokið við að athafna sig á tolettinu laumaðist ég þangað inn til að klára að pissa en konan hafði þá hengt upp skilti fyrir ofan klósettið sem á stóð:  “ Stattu nær hann er styttri en þú heldur “  Þegar ég hafði svo keyrt konuna í vinnuna fór  ég heim aftur og gerði smá mælingar í bílskúrnum og velti fyrir mér hvort ekki mætti skipuleggja svolítið tolett við hliðina vaskahúsinu í skúrnum.  Ég ákvað þó að bíða eftir því að konan kæmi heim og kanna hvort kuldakastinu væri ekki örugglega lokið áður en ég bæri skipulagninguna undir hana því hún sagði nefnilega við mig þegar við fluttum:  “ Hér verður ekkert skipulagt nema ég skipuleggi skipulagninguna. “


RÚSSNESKAN

Jæja, ekkert verið bloggað nokkuð lengi en fyrir því er góð og gild ástæða.  Ástæðan er sú að ég hef sitið á skólabekk og verið að læra tungumál af miklum móð síðustu vikur og þar sem ég taldi það mjög mikilvægt að ná að læra hrafl í RÚSSNESKU á sem skemmstum tíma þá hef ég ekki gefið mér tíma til þess að blogga neitt þessar síðustu vikur.  Og hver skyldi svo vera ástæða þess að maður sest á skólabekk og það á gamalsaldri til að læra rússnesku,  tja það skal ég segja ykkur og svo getið þið sjálf dæmt um það hvort ekki var bráðnauðsynlegt að hefja lærdóminn.  Þannig var að ég sat fyrir nokkrum vikum í stofunni í raðhúsinu okkar í Miðtúninu á Selfossi og var að virða fyrir mér garðinn sem var að verða heldur loðinn og hugsaði með mér hvað það væri nú gott að vera með svona lítinn garð,  lítið að slá og ekki lengi gert að reyta arfann.  Ég komst að þeirri niðurstöðu að þetta væri eins bjórs garður þ.e. garðurinn væri svo lítill að ekki þyrfti nema einn bjór þegar farið væri í slátt og fleira.  Þar sem að ég sat og virti þessa dýrð fyrir mér sá ég hvar konan kom kjagandi og dró á eftir sér sláttuvélina með annari hendi en í hinni hélt hún á arfaklórunni.  Ég sá að nú var rétti tíminn til að láta sig hverfa og stökk því upp á loft og lagði mig smá stund.  Úti heyrði ég svæfandi suðið í sláttuvélinni og var rétt að festa blund þegar konan hætti skyndilega að slá og ég heyrði hana vera að skrafa við einhvern úti í garði.  Ég kíkti út um gluggann og sá konuna á spjalli við einhverja konu og virtist báðum mikið niðri fyrir.  Ekki heyrði ég orða skil en þegar spjalli þeirra lauk tók konan ekki til við sláttinn aftur heldur tók strikið inn um garðdyrnar og kallaði í mig og skipaði mér að koma strax niður í stofu.  Ég þarf að ræða við þig alvarlegt mál sagði hún og benti mér að setjast.  Já þetta er grafalvarlegt mál sagði ég,  garðurinn er ekki nema hálfsleginn bætti ég við um leið og ég settist í stofusófann.  Skítt með þessa garðholu sagði konan við eigum hann hvort sem er ekki lengur.  Ha hvað áttu við sagði ég,  eigum við garðinn ekki lengur,  hvernig getur það verið garðurinn  tilheyrir húsinu ekki satt.  Jú mikið rétt sagði konan en við eigum húsið heldur ekki lengur.  Bíddu, hægan hægan þegar ég fór upp á loft áðan vissi ég ekki betur en við ættum þetta hús en hálftíma seinna eigum við skyndilega ekkert hús,  hvernig má það vera sagði ég og var eitt spurningamerki í framan.  Jú sjáðu til konan sem ég var að tala við er konan sem á stóra húsið sem ég var að skoða á netinu um daginn þú veist húsið með herbergjunum fyrir alla krakkana og  passlega íbúð fyrir mömmu og pabba í kjallaranum,  hún var að bjóða okkur húsaskipti,  við borgum bara eitthvað smá í milli og ég ákvað að taka því og það verður skrifað undir eftir helgi sagði konan og brosti út að eyrum.  Kjallarinn er að vísu í útleigu núna það eru þrír RÚSSAR sem búa þar núna en ég verð fljót að henda þeim út sagði konan,  það eina sem við þurfum að gera er að mæta hjá fasteignasalanum og skrifa undir og húsið er okkar bætti hún við.   Og það var þá sem það gerðist.   Tengdó!! Kjallarinn!!  stundi ég upp en síðan fékk ég skyndilegan svima og síðan tak fyrir brjóstið og loks snert af taugalömun,  eða ég held að það hljóti að hafa verið taugalömun.  Það næsta sem ég vissi var að konan var búinn að hringja í dýralæknirinn og láta sprauta mig niður og áður en ég vissi almennilega af mér aftur var ég búinn að skrifa undir kaupsamninga og kaupa stóra húsið og í ljós kom þegar bráði af mér og ég fór að skoða aðstæður að húsinu fylgdi að minnsta kosti sex bjóra garður.  Ekki var fyrr búið að skrifa undir en konan fór að reka RÚSSANA úr kjallaranum en kom blaðskellandi til baka og sagði að bara einn rússi hefði verið heima og hann skildi ekkert hvað ég var að segja,  þú verður að fara og tala við þá sagði hún ákveðin.  Tengdó, kjallarinn,  rússarnir.   Tengdó,  kjallarinn,  rússarnir  var það eina sem ég gat hugsað en fékk svo skyndilega hugljómun.  Ef ég yrði nógu snöggur að læra Rússnesku gæti ég kannski alveg óvart gert eins og þriggja ára leigusamning við rússana en svo aftur myndi þíða að næstu þrjú árin NO TENGDÓ.  Ég hef svo setið á skólabekk síðustu vikurnar og lært rússnesku af miklum móð og nú er ykkar að dæma hvort ekki var nauðsynlegt að setjast aftur á skólabekk þótt á gamalsaldri sé.  Nú ætla ég að biðja alla sem lesa þetta að segja sitt álit á málinu því mér mun ekki veita af stuðningi þegar konan sér samninginn við rússana.  Set svo nokkarar myndir af nýja slotinu hennar Sólveigar í albúm hér til hliðar.

 

PS:  Þegar ég fór svo að gera samninginn við rússana kom í ljós að þarna bjuggu jú þrír rússar, par sem talar ágæta ensku og hann hrafl í íslensku og svo annar til sem talar bara rússnesku en til vonar og vara höfðum við samninginn á rússnesku.


Smjattpattinn í Gúrkubæ

Konan mín þessi Guðs blessun á það til að fá sérkennilegar flugur í höfuðið, jafnvel svo skýtnar að margir myndu kalla það dillur en það dettur mér náttúrulega aldrei í hug að gera.   T.d. í eitt skipti lét hún senda sér stærðar grjóthnullung alla leið frá Patreksfirði, eins og það sé ekki til nóg af grjóti á Selfossi og í annað skipti gerði hún sér ferð í Mosfelsbæ til að sækja nokkur puntstrá af alveg sérstakri gerð að hennar sögn,  sem hún síðan gróðursetti í garðinum okkar og núna þekja þessi puntstrá alveg eitt hornið í garðinum okkar eða illgresishornið eins og ég kalla það.  Þessar flugur sem konan hefur fengið í höfuðið eða dillur eins og mér dettur ekki í hug að kalla þær hafa jú flestar tengst garðinum okkar og því var ekki laust við að maður fengi ofurlítin hnút í magann þegar konan ákvað að gerast bankastjóri í Hveragerði eða Gúrkubæ eins og maður kallaði það þegar foreldrar mínir fóru með mig í bíltúr þegar ég var lítill að þeirra sögn til að heimsækja frænda minn í gróðurhúsinu hjá Palla Mikk.  Ég vissi aldrei hver þessi frændi var en venjulega var mér plantað við apabúrið hjá Palla Mikk og fékk gúrku að naga meðan ég horfði á apana.   En sem sagt þegar konan fór að vinna í þessum mikla garðyrkjubæ átti ég alveg eins von á að hún fengi nú eitt kastið enn og ég þyrfti að fara að byggja gróðurhús eða eitthvað þaðan af meira.  En ótti minn hefur verið ástæðulaus alveg fram til þessa en það var einmitt í miðjum leik í heimsmeistarakeppninni í fótbolta að konan stóð skyndilega á fætur og sagði:  Þetta gengur ekki ég er búinn að vinna í meira en ár í Hveragerði og ekki ennþá komin með græna fingur,  nei nú verður breyting á,  þú kemur með mér út í Hveragerði að kaupa plöntur og blóm og svo förum við að gróðursetja.  En er nokkuð pláss eftir í garðinum elskan mín sagði ég þetta meiga ekki vera nein stórinnkaup ef það á að komast fyrir,  kannski fáeinar Morgunfrúr og Meyjarljómi og kannski einn Ilmskúfur.  Láttu mig um að ákveða allt um það sagði konan og dró mig út í bíl og lét mig aka út í Hveragerði.   Þegar við svo komum í Hveragerði lét konan mig keyra í hverja gróðrastöðina af annari en fann hvergi það sem hún var að leita að.  Ég var því orðin vongóður um að þetta yrði bara léttur bíltúr og konan léti sér bara nægja að skoða öll blómin og plönturnar.  Konan ákvað svo að gera lokatilraun og lét mig aka heim að lítilli gróðrastöð og snaraðist þar inn og hóf skoðunarferð.  Ég tók eftir því að konan virtist hafa meiri áhuga á að skoða gamla kerlingu sem sat við afgreiðsluborðið en plönturnar og blómin sem voru þarna í bunkum.  Það er ég viss um að þessi kona er að vestan hvíslaði konan mér finnst ég kannast eitthvað við svipinn á henni bætti hún við.   Það er nú sami sauðasvipurinn á öllum þessum kerlingum tautaði ég en gláptu ekki svona á konuna farðu heldur og spurðu hana hvort hún sé að vestan.  Konan leit illilega á mig en sigldi svo sem leið lá framhjá burknum og rósavöndum að afgreiðsluborðinu og sagði:  Sæl gæskan ekki getur verið að þú sért að vestan mér finnst ég kannast eitthvað svo við svipinn á þér.  HA kallaði sú gamla.  Ekki getur verið að þú sért að vestan spurði konan aftur og hækkaði róminn.  Jú jú það passar alveg skrækti sú gamla ég er frá Tálknafirði en hárið og tennurnar eru þó úr Reykjavík bætti hún við.  Þarna sérðu bara hvað ég er mannglögg sagði konan og hér ætla ég að versla sagði hún og hófst handa við að tína til plöntur og blóm sem ég bar jafnóðum út á bílpallinn.   Þó tók nú útyfir allt þegar konan keypti poka af hænsnaskít, já trúið mér það er hægt að kaupa hænsnaskít í pokum,  og skipaði mér að fara með hann út í bíl.  Er nú ekki óþarfi að vera að kaupa þetta sagði ég ég get bara látið hundinn skíta á Morgunfrúrnar tautaði ég en flýtti mér síðan með hænsnaskítinn út í bíl þegar ég sá svipinn á konunni.  Það get ég svarið að ég sá ekki betur en pallurinn á bílnum okkar væri um það bil að sligast þegar við ókum heim og má hann þó bera yfir eitt tonn en kannski var það ímyndun í mér.   Konan hófst svo handa við að blanda mold og hænsnaskít í potta og blómabeð þegar heim var komið en ég laumaðist inn í stofu til að kanna stöðuna í heimsmeistarakeppninni.  Eftir góða stund kom konan á harðaspretti og sagði:  Guð minn góður ég steingleymdi einu,  auðvitað átti ég að kaupa grænmeti líka því núna þegar ég er komin með græna fingur er best að taka líka upp hollari lífshætti og hætta kjötátinu og fara meira í grænmetið.  Síðan tók hún strikið út á hlað og ég sá á eftir henni á bílnum á öðru hundraðinu í áttina að Hveragerði.   Eftir góða stund kom hún aftur og hófst handa við að bera inn úr bílnum tómata, gulrætur og gúrkur og eitthvað fleira í kassavís.  Er þetta nú ekki fullmikið af því góða sagði ég og starði á grænmetisfjallið sem komið var á eldhúsborðið.   Allt fyrir hollustuna sagði konan og skaust út í bíl að sækja meira.  Það var þá sem ég gerði mér ljóst að konan var ekki bara komin með garðyrkjubakteríuna heldur er hún á góðri leið með að verða  “ SMJATTPATTI  Í  GÚRKUBÆ “


Sameiginleg áhugamál

Mér finnst komin tími til að við förum að finna okkur eitthvað sameiginlegt áhugamál sagði konan við mig einn daginn þar sem ég sat við eldhúsborðið og las Moggann.  Aha svaraði ég og hélt áfram að lesa blaðið.  Já það er komin tími til að ég fái að kynnast þínum áhugamálum og þú mínum sagði konan ákveðin og ég sá að það var ekkert undanfæri svo ég lokaði blaðinu og snéri mér að henni.  Og hvað er það elskan mín sem þú villt að við gerum saman sagði ég og þér er velkomið að taka þátt í mínum áhugamálum, það er t.d. leikur í sjónvarpinu í kvöld sem þú getur horft á með mér og svo á ég veiðidag fljótlega líka,  og hvað af þínum áhugamálum villtu að ég taki þátt í,  ég hef mjög takmarkaðan áhuga á útsaumi og þessháttar.  Mín áhugamál liggja miklu víðar sagði konan spekingslega og það væri ágætt að byrja bara rólega og taka eitt skerf í einu og ég held að ég prufi að koma með þér í veiði fyrst og þú getur þá prufað eitt af mínum áhugamálum t.d. skúringarnar eða uppvaskið eða þvottavélina.  Mér er nú voðalega illa við að taka öll bestu áhugamálin frá þér stamaði ég skelfingu lostinn og horfði á konuna sem stóð glottandi við eldhúsvaskinn.  Eins og ég sagði bara taka eitt skref í einu og við getum bara byrjað smátt ég er að fara að setja í þvottavél og það er tilvalið hjá þér að læra á hana í leiðinni sagði konan og stormaði inn í vaskahús.  Ég sá að orustan var að tapast  svo ég dróst á eftir henni inn í vaskahús meðan ég hugsaði um hvernig ég ætti að snúa mig út úr þessu.  Þú veist að þegar maður fer í veiði þá verður maður að láta sig hafa það að skríða í görðum að næturlagi í grenjandi rigningu og tína orma og síðan þarf að þræða þá upp á öngulinn sagði ég vongóður og beið eftir viðbrögðum frá konunni.  Ég er ekkert hrædd við einhverja ánamaðkatitti sagði konan ég hef nú glímt við stærri snáka en það og mér verður ekki skotaskuld úr því að þræða þá upp á öngulinn bætti hún við meðan hún hrærði í körfunni með óhreina tauinu.  Síðan tók við fyrirlestur um öll helstu þvottakerfi vélarinnar og ströng fyrirmæli hvað mætti þvo með hverju, hvað mætti sjóða og þessháttar.  Jæja byrjaðu þá sagði hún svo og benti á körfuna með óhreina tauinu.  Hvað er þetta sagði ég,  ætlarðu að þvo lampaskerminn og togaði í eitthvað sem stóð út úr körfunni.  Viltu gjöra svo vel að láta brjóstahaldið mitt í friði hrópaði konan og sló á puttana á mér,  nú á að þvo mislitt tau eins og ég kenndi þér áðan.  Eftir að hafa sett í þvottavél undir ströngu eftirliti settist ég svo niður í stofu og horfði út í rigninguna sem lamdi gluggann og velti því fyrir mér hvort þetta væri ekki fínasta ánamaðka veður  og kallaði svo í konuna og sagði:  Fáðu leyfi hjá systur þinni til að fara í garðinn hjá henni til að  tína ánamaðka í nótt,  við skulum fara og sækja nokkra fyrir veiðitúrinn.  Konan hringdi umsvifalaust til að fá leyfið og fór svo að tína til regnfatnað og stígvél fyrir nóttina.  Það var svo um hálf eitt leitið um nóttina sem við ókum í hlað við umræddan garð og ég varð að viðurkenna að konan var ansi vígaleg í pollagallanum með stærðar sjóhatt og vopnuð vasaljósi.  Svo er bara best að skríða á hnjánum ofur varlega meðan maður tínir sagði ég og greip  stærðar ánamaðk í blómabeðinu og rétti konunni sem kipptist við þegar hann spriklaði í hendinni á henni.  Við skulum bara skipta með okkur garðinum,  þú ferð bak við húsið og ég verð að framanverðu sagði ég,  þá verðum við skotfljót að tína eins og 200 stykki.  Konan greip dolluna undir maðkinn og hvarf á bak við hús og ég hófst handa við að tína í beðinu fyrir framan húsið.  Ekki hafði ég tínt langa stund þegar ég heyrði skaðræðis óp og sá konuna koma á harðahlaupum út úr innkeyrslunni þar sem hún tók krappa vinstri beygju og hélt svo áfram upp götuna í átt að Engjaveginum.  Ég hélt að konan hefði meitt sig og hljóp því á eftir henni en hún var komin langleiðina út á horn þegar ég loksins náði henni og greip í hendina á henni og spurði lafmóður hvað gengi á.  Sniglar, sniglar, sniglar það voru milljón sniglar æpti kona þegar hún loksins náði andanum.  Já auðvitað er líka sniglar í garðinum sagði ég,  þeir fara líka á stjá í rigningunni.  En það voru milljón sniglar,  nei örugglega tvær milljónir æpti konan og ég þoli ekki snigla.  Nú kveiknaði ljós í húsinu sem næst okkur var og eldri maður sem vaknað hafði við lætin kom út á tröppurnar og snéri sér að konunni og sagði:  Ert þú í einhverjum vandræðum kona góð,  villtu að ég hringi á lögregluna fyrir þig.  Ha nei nei sagði konan þetta er allt í lagi en það væri gott ef þú hringdir á meindýraeyði.   Maðurinn horfði undarlega á mig en tautaði svo “ aumingja konan “  og lokaði dyrunum.   Heyrðu elskan sagði ég sniglarnir bíta ekkert og ég skal skipta við þig um stað,  þú tínir fyrir framan hús,  þar er miklu miklu minna en tvær milljónir af sniglum en ég skal tína á bak við hús.  Konan fékkst loks til að fara með mér til baka og stóð góða stund á stéttinni áður en hún áræddi að gera aðra tilraun.  Ég fór því á bak við hús og byrjaði að tína en eftir augnablik kom annað skaðræðisóp og ég sá konuna bruna aftur út innkeyrsluna nema núna beygði hún til hægri í áttina að Vallholtinu æpandi “ sniglar og köngulær, sniglar og köngulær “  Ég stökk upp í bílinn og ók á eftir konunni en svo mikil var ferðin á henni að hún var komin langleiðina út í Fossnesti þegar ég loksins náði henni.  Konan snaraðist upp í bílinn og skipaði mér að keyra heim eins og skot.  En hvað með að taka þátt í áhugamálum hvors annars sagði ég þú vildir endilega kynnast mínum og ég er þegar búinn að kynnast einu af þínum bætti ég við.  Konan leit á mig undarlegu augnaráði en sagði eftir góða stund:  Ég held að það sé best að þú sjáir um ánamaðkana og ég um þvottinn og ég er ekkert svo viss um að það sé svo góð hugmynd að hafa “ sameiginleg áhugamál “  


MAMMA BORGA

Seinni vika okkar hjónakorna í sólinni var nú hafin og var dagskráin í grófum dráttum þannig að við fórum niður um kl 9:00 á morgnanna og fengum okkur morgunverð og lögðumst síðan í sólbað í sundlaugargarði hótelsins og flatmöguðum þar fram að heitasta tíma dagsins eftir hádegið. Ég hélt alltaf að ég hefði ekki þolinmæði í það að liggja í sólbaði en komst að því að það má ýmsu venjast, sérstaklega þegar Þýsk blómarós gengur um klædd nákvæmlega eins og Heiða úr bókinni góðu með flétturnar og allt það, og tók niður pantanir á Sangriu og bjór og þess á milli bauð hún fólki í Ping Pong, billjard og fleira. Á kvöldin stjórnaði Heiða síðan skemmtidagskrá á hótel barnum sem fólst aðallega í því að halda Bingó og karókí fyrir ferðamennina og eftir að konan vann einhverja forljóta drykkjarkrús í Bingó þá var náttúrulega aldrei sleppt úr Bingókvöldi eftir það, svo við þekktum því Heiðu orðið ágætlega enda bestu viðskiptavinir hennar bæði á sundlaugarbakkanum og á Bingókvöldunum. Eftir hádegið stóð svo valið um það að fara í verslunarferð enda stærsta Moll eyjarinnar við hliðina á hótelinu okkar eða fara að dæmi inndæddra og taka Siestu um heitasta tíma dagsins. Ég var eindreginn stuðningsmaður Siestunar en konan hafði meira dálæti á verslunarferðunum og seinni vikuna okkar var því tekin ein Siesta en farið í sex verslunarferðir. Konan hafði tekið sérstöku ástfóstri við skóbúð eina í Mollinu sem seldi reyndar líka veski og töskur og þar kom hún venjulega við í þessum ferðum okkar. Í einni af ferðunum hafði konan rekist á skópar sem hún bara varð að eignast og þegar ég hafði greitt reikninginn stakk konan upp á því að við myndum setjast á matsölustað og fá okkur eitthvað í gogginn og bætti því við að ég mætti fá einn bjór með enda var hún í besta skapi eftir skókaupin. Þegar við svo gengum um Mollið í leit að hentugum stað til að borða á þreif konan skyndilega í handlegginn á mér og kallaði, sjáðu maður, sjáðu þetta veitingahús, þeir eru með prinsessustóla og svona flottar blómaskreytingar á borðunum, þetta er greinilega klassastaður, hér borðum við sagði hún svo og eins og sú sem valdið hefur og hlammaði sér í einn prinsessustólinn. Meðan konan skoðaði matseðilinn kom svo þjóninn alveg óbeðinn og færði henni glas af Sangriu og komst hún þá á þá skoðun að þetta væri örugglega besta veitingahúsið á Kanaríeyjum. Þegar að bjórinn var svo borin fram í glasi með háum fæti var henni allri lokið og skyldi bara ekkert í því hvernig henni hefði sést yfir þennan klassastað fram að þessu. Eftir góðan forrétt og stærðar piparsteik á eftir var konan hin ánægðasta og pantaði Irish coffe handa okkur til að fullkomna nú máltíðina. Ég verð að viðurkenna að mér leið bara bærilega eftir þessar kræsingar og var að velta fyrir mér öðrum Irish þegar konan kallaði í þjóninn og bað um reikninginn. Þjóninn kom að vörmu spori með reikninginn, bugtaði sig og beigði um leið og hann setti reikninginn fyrir framan konuna og sagði hátt og skýrt á Íslensku. “ Mamma borga “ Ég tók eftir því að konan skipti litum og þjóninn var ekki fyrr farinn frá borðinu en hún hvæsti; Heldur þessi karlauli virkilega að ég sé mamma þín, hvurslags andskotans ósvífni er þetta, hér verður ekki étið aftur. Ætli það hafi nú bara ekki einhver Íslendingur kennt honum að segja þetta svona til gamans og hvað með prinsessustólana og blómaskreytingarnar áræddi ég að leggja til málanna. Þessir stólar eyðileggja í manni hrygginn urraði konan og þennan andskotans borðarfa hafa þeir örugglega fundið á ruslahaugunum bætti hún við meðan hún taldi pening úr veskinu sínu og ég sá á svipnum á henni að þjóninn þyrfti ekki að búast við þjórfé þennan daginn. Þetta er “skítabúlla” sagði konan og skellti peningunum á borðið og strunsaði út. Ég flýtti mér á eftir henni og lóðsaði hana umsvifalaust aftur inn í skó og töskubúðina en það var ekki fyrr en eftir góða stund og eitt skópar og handtösku að auki sem konan tók gleði sína á ný. Næst lá leið okkar niður á neðstu hæðina í Mollinu og þar fann ég búð sem seldi afskaplega fallega leðurjakka og stakk mér þar inn til að skoða. Þar var við afgreiðslu Indverji einn lítill sem greinilega hugsaði sér gott til glóðarinnar því hann sýndi mér hvern jakkann á fætur öðrum og fékk ég dálæti á einum öklasíðum frakka úr besta leðri í heimi eftir því sem Indverjinn sagði. Ég kallaði því í konuna til að fá nú álit sérfræðings á frakkanum. Mig hefur alltaf langað í svona síðan Gestapo frakka sagði ég við konuna, hvernig finnst þér hann. Konan viðurkenndi að frakkinn væri nokkuð fínn en leit svo á verðmiðann sem sýndi 700 evrur og fékk ákaft hóstakast. Þetta er alltof mikið sagði hún síðan ákveðin. Indverjinn litli sá greinilega í hvað stefndi og hver réði ferðinni því hann virti mig skyndilega ekki viðlits heldur snéri sér umsvifalaust að konunni og sagði. No no no special price for you from Iceland 400 euro sagði hann og skrifaði töluna á miða og sýndi konunni. “ Mamma borga “ bætti hann svo við skælbrosandi og þóttist viss um að hafa landað þessum viðskiptum. Ég leit á konuna og varð þegar ljóst að “Móðurharðindin” voru um það bil að helllast yfir Indverjan litla og gott ef ekki Indland allt svo ég svippaði mér úr frakkanum og afsakaði mig með því að hann væri heldur þröngur og við kæmum aftur seinna og lempaði konuna umsvifalaust aftur inn í skó og töskubúðina sem var nú að verða mitt helsta vígi í Mollinu. Konunni var aldeilis ekki runnin reiðin og sagði mér að vera ekki að þvælast einn í leðurjakkabúðir, það væri augljóst að Indverjinn hefði ætlað að svindla á mér, þessi litli tittur bætti hún við ekki nema tvær skítslengdir á hæð. Konan lét sér nægja eina handtösku í þetta sinn sem betur fer því hótelherbergið okkar leit orðið út eins og skó og töskubúðin góða enda konan búin að kaupa helming af því sem til var þar. Þegar konan fór svo daginn fyrir heimferð að pakka niður í töskurnar kom í ljós að farangurinn komst ekki allur fyrir. Ég skil bara ekkert í þessu sagði konan þær voru næstum tómar töskurnar þegar við fórum út. Ég sá að það væri best að segja fátt í þetta sinn svo ég jánkaði bara og sagði alveg rétt elskan það er bara eins og farangurinn hafi tútnað út í hitanum. Þegar konan hafði endurraðað þrisvar í töskurnar sagði hún ákveðin við mig, þú verður bara að skreppa og kaupa eina ferðatösku til viðbótar ég get ómöglega lokað þessari. En ef við setjumst bæði á hana kannski lokast hún þá sagði ég og eftir að hafa reynt þessa snilldarhugmynd mína tölti ég svo út og keypti tvær ferðatöskur því hin þoldi ekki meðferðina. Daginn eftir vorum við svo sótt á tilsettum tíma og ekið með öllu okkar hafurtaski á flugvöllinn og í rútunni skýrði fararstjórinn frá því að hver farþegi mætti hafa með sér 20 kg af farangri eða samtals 40 kg á hjón allt umfram það yrði að greiða yfirvigt fyrir. Konan fékk ákaft kvíðakast yfir því hvað töskurnar væru þungar og sá fram á stór fjárútlát á flugvellinum. Þegar þangað var komið náði ég svo í kerru og við ókum hafurtaskinu inn í flugstöðina og fórum í röðina til innritunar. Ég fann að það var komin tími á að losa mig við morgunbjórinn svo ég sagði konunni að ég ætlaði að spreppa á salernið og pissa en konan skipaði mér að vera í röðinni til að ganga frá yfirvigtinni. Blessuð hafðu ekki áhyggjur af þessari yfirvigt sagði ég og kyssti hana á kinnina, og um leið og ég skaust inn á salernið rétti ég henni veskið mitt og hvíslaði í eyrað á henni:

“ MAMMA BORGA “


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband